Samantekt á verði og framboði á sáðvöru 2023

Nú er kominn sá tími að huga þarf að sáðvörukaupum fyrir vorið. Við hjá RML höfum tekið saman framboð fræsala af sáðvöru líkt og undanfarin ár og er komið yfirlit yfir það á vefinn. Ýmislegt er í boði en við áréttum mikilvægi þess að kynna sér vel hugsanlegan mun á yrkjum einstakra tegunda enda getur verið mikill munur á frammistöðu þeirra þó þau tilheyri sömu tegundinni. 

Í samantektinni eru umsagnir um yrki tekin upp úr nýjustu útgáfu af ritinu, Nytjaplöntum á Íslandi 2023, sem gefið er út af LbhÍ. Ef engar upplýsingar eru í því riti, þá er þar með ekki útilokað að yrkin hafi verið prófuð eða að einhver reynsla sé af þeim, góð eða slæm. Í ritinu finnast margar góðar upplýsingar um tegundir og hvernig þær geta nýst sem best.

Margar spennandi nýjar grasfræblöndur eru í boði og sérstaklega fyrir ræktun með smára. Markvisst val á tegundum og yrkjum til ræktunar er mikilvægur þáttur í bústjórninni. Taka þarf tillit til staðbundinna aðstæðna og hver markmiðin eru með ræktuninni svo að ávinningurinn verði sem bestur í búrekstrinum.

Ráðunautar RML er tilbúnir að aðstoða við val á tegundum og yrkjum og er hægt að óska eftir ráðgjöf í síma 516 5000.

Sjá nánar:
Verð og framboð á sáðvöru 2023
Verð og framboð á grasfræblöndum 2023

/okg