Samningur um verkefnið "Betri gögn, bætt afkoma"

Mynd: Ásta Sigrún Magnúsdóttir
Mynd: Ásta Sigrún Magnúsdóttir

Þann 11. júní var undirritaður samningur um verkefnið „Betri gögn, bætt afkoma“ milli Atvinnuvega- og nýskpöpunarráðuneytis, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) og Landssamtaka sauðfjárbænda.
Verkefnið er liður í aðgerðaráætlun til eflingar íslensks landbúnaðar sem ráðherra kynnti í febrúar 2021 og er þungamiðja aðgerðar um sértæka vinnu vegna sauðfjárræktarinnar. 
 
Um er að ræða þriggja ára verkefni til að efla rekstrarráðgjöf til sauðfjárbúa og bæta afkomu þeirra. RML,  hefur undanfarin ár unnið að verkefninu „afkomuvöktun sauðfjárbúa“ sem snýr að söfnun og greiningu rekstrargagna frá sauðfjárbúum og nýtt gögnin til að leiðbeina bændum um sinn rekstur. Niðurstöður verkefnisins sýna að tækifæri eru til staðar til hagræðingar en mikill breytileiki er í afkomu búanna. Samkvæmt samkomulaginu byggir verkefnið á þessari vinnu RML sem ráðunautarnir Eyjólfur Ingvi Bjarnason og María Svanþrúður Jónsdóttir hafa leitt síðastliðinn ár.
 
Ætlunin er að efla verkefni RML verulega og fjórfalda stærð þess á samningstímanum. Gögnin verða nýtt til að auka leiðsögn til þátttakenda um tækifæri til hagræðingar í sínum rekstri í ljósi þeirra gagna sem þeir skila inn. RML mun veita ráðgjöf til þátttakenda á einstaklingsgrunni sem byggir á styrkleikum og veikleikum hvers og eins

Á myndinni eru Unnsteinn Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, Kristján þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri RML, við undirritun samningsins.