Samstarfsfundur RML og LbhÍ

Líkt og undanfarin ár var Ráðunautafundur haldinn á Hvanneyri. Fundurinn er samstarfsvettvangur RML (Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins) og LbhÍ (Landbúnaðarháskóla Íslands). Fundurinn var að þessu sinni haldinn dagana 13. og 14. ágúst. Starfsmenn beggja aðila nýttu fundinn til að kynna ýmis verkefni sem unnið er að á hvorum stað, ásamt því að ræða um framtíðarverkefni og tækifæri í samstarfi. Meðal umfjöllunarefna að þessu sinni voru loftslagsáhrif vegna iðragerjunar mjólkurkúa og vegna geymslu búfjáráburðar, þróun skýrsluhaldskerfa og þá m.a. varðandi gögn um umhverfisáhrif landbúnaðar. Farið var yfir stöðuna á ræktun gegn riðu, kostnaði við gróffóðuröflun og kornrækt, aðlögunarhæfni byggyrkja að íslenskum umhverfum og velferð kynbótahrossa á kynbótasýningum.

Að þessu sinni var gestum frá Landi og skógi og Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands boðið að segja frá sinni starfsemi og þá um leið ræða um mögulega samstarfsfleti. Fundurinn tókst í alla staði ákaflega vel og er þessi samstarfsvettvangur mjög mikilvægur fyrir starfsmenn Lbhí og RML.

/hh