Sauðfjárbændur athugið

Kapall frá Hvoli
Kapall frá Hvoli

Á næstu dögum hefst vinna við hrútaskrá fyrir komandi vetur. Einn partur þeirrar vinnu er að uppfæra kynbótamat fyrir gerð og fitu sláturlamba þannig að gögn frá haustinu 2021 nái inní útreikning.

Sauðfjárbændur er hvattir til að lesa inn sláturgögn og yfirfara sláturskrár hjá sér í Fjárvís ef einhver númer hafa verið rangt lesin hjá sláturhúsi vilji þeir að gögnin á þeirra búi séu rétt þegar gagnaskrá vegna vinnu kynbótamats verður útbúin fyrrihluta næstu viku.

Gagnaskrá fyrir árið 2021 er þannig unnin að staðfest gögn fyrir árið 2021 eru tekin út ásamt óstaðfestum gögnum þar sem finnast lömb sem passa við gögnin á viðkomandi búum. Verði breytingar á sláturgögnum eftir að gagnaskrá er útbúin koma þau rétt með þegar kynbótamat fyrir gerð og fitu verður reiknað aftur næsta haust.