Síðasti skráningardagur á kynbótasýningar vorsins er 25. maí

Síðasti skráningardagur á kynbótasýningar vorsins er föstudagurinn 25. maí en hægt er að skrá til miðnættis svo lengi sem einhver pláss eru eftir. Um leið og sýning fyllist lokast á skráningu. Enn eru laus pláss á eftirtöldum sýningum:

  • Sprett í Kópavogi dagana 4. til 8. júní
  • Hóla í Hjaltadal dagana 4. til 8. júní
  • Borgarnes dagana 11. til 15. júní
  • Gaddstaðaflatir við Hellu dagana 11. til 15. júní
  • Víðidal í Reykjavík 11. til -15. júní

Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“.

Einnig er hægt að skrá hross til sýningar hér á heimasíðu RML í gegnum flýtihnapp á forsíðunni. Rétt er að árétta að einungis er hægt að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er lengur hægt að greiða með millifærslu. Þegar greiðsla hefur tekist þá á að koma kvittun í tölvupósti, ef kvittunin kemur ekki hefur skráning trúlega ekki tekist. Þeir sem hafa aðgang að WF geta með því að fara inn í „sýningar“ séð hvort hrossið er komið inn á sýninguna. Ef hrossið birtist þar hefur allt gengið upp og hrossinu verður úthlutað tíma. Þegar búið er að raða niður á dagana er röðunin birt hér á heimasíðunni.

Verð fyrir fullnaðardóm er 26.000 kr. en fyrir sköpulags- eða hæfileikadóm 20.500 kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en sýningarvikan hefst, í síma 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreiddar eru kr. 14.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 11.000 kr. fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn framvísun læknisvottorðs. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí nk.

Allar nánari upplýsingar í síma RML, 516-5000 eða hér á heimasíðunni undir "Kynbótastarf/hrossarækt/kynbótasýningar" þar sem t.d. má finna leiðbeiningar um hvernig á að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið hross@rml.is.

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Fyrir stóðhesta fimm vetra og eldri þurfa niðurstöður úr blóðsýni og röntgenmynd af hæklum að liggja fyrir í WorldFeng. Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu. Ekki er hægt að skrá hryssur og geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.

Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni án undantekninga.

Sjá nánar:

Upplýsingar varðandi kynbótasýningar

Skrá á kynbótasýningu

hes/okg