Síðasti skráningardagur á vorsýningar á morgun - föstudaginn 26. maí.

Síðasti skráningardagur á allar vorsýningar er á miðnætti á morgun föstudaginn 26. maí. Skráning og greiðsla fer fram hér á heimasíðu RML.

Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Í töflunni hér að neðan má sjá á hvaða sýningum eru laus pláss.

Nánari upplýsingar er að finna í gegnum tengla hér að neðan, einnig er hægt að hringja í síma 516-5000 eða senda tölvupóst á netfangið rml@rml.is.

Sjá nánar:
Upplýsingar um kynbótasýningar
Skrá á kynbótasýningu

/okg