Síðsumarssýning á Sörlastöðum fellur niður

Kynbótasýning sem vera átti á Sörlastöðum vikuna 15. til 19. ágúst fellur niður þar sem einungis 17 hross voru skráð. Haft verður samband við eigendur  hrossanna og þeim boðið pláss á síðsumarssýningunni  á Gaddstaðaflötum þessa sömu viku eða að fá sýningargjaldið endurgreitt.