Síðsumarssýningar kynbótahrossa

Í næstu viku verða haldnar þrjár síðsumarssýningar; á Gaddstaðaflötum við Hellu, Sörlastöðum í Hafnarfirði og Hólum í Hjaltadal.

Hefjast þær sem hér segir:
Sýningin á Gaddstaðaflötum hefst kl. 8:00 mánudaginn 17. ágúst og lýkur með yfirlitssýningu föstudaginn 21. ágúst.

Sýningin á Sörlastöðum hefst kl. 8:00 þriðjudaginn 18. ágúst og lýkur með yfirlitssýningu fimmtudaginn 20. ágúst.

Sýningin á Hólum hefst kl. 13:00 þriðjudaginn 18. ágúst og lýkur með yfirlistssýningu föstudaginn 21. ágúst.

Búið er að birta röðun hrossa hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á tengil hér neðar. Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms svo að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Sjá nánar: 
Röðun hrossa á kynbótasýningum
Upplýsingar um kynbótasýningar

/okg