Síðsumarssýningar - loka skráningadagur er 9. ágúst

Opnað verður á skráningar á síðsumarssýningar þann 15. júlí næst komandi. Sýningarnar verða vikuna 19. til 23. ágúst á þremur stöðum, Selfossi, Akureyri og Borgarnesi, ef þátttaka verður næg. Sýning verður ekki haldin nema lágmarks fjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Síðasti skráningar- og greiðsludagur er á miðnætti föstudaginn 9. ágúst. RML áskilur sér fullan rétt til að fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við.

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að fara inn á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins www.rml.is en þar er valmynd á forsíðunni „skrá á kynbótasýningu“. Á sömu heimasíðu undir kynbótastarf/hrossarækt/kynbótasýningar má finna leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá á kynbótasýningu. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Til að fá aðstoð er hægt að hringja í síma 516-5000, eða senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að hafa tímann fyrir sér frekar en hitt þegar kemur að skráningum á sýningarnar.
Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðu RML, www.rml.is, þegar þær eru tilbúnar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Sýningargjöld og fleira.

Verð fyrir fullnaðardóm er 26.000 kr. en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 20.500 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er lengur hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð birtist það strax inn á viðkomandi sýningu. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið útskeiðis við skráninguna. Aðeins þau hross sem hlotið hafa fullnaðardóm á sama sýningarári eru gjaldgeng í einfaldan reiðdóm.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreitt er 14.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 11.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 16. september. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið.  Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Minnum á eftirfarandi:

  • Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
  • Allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra.
  • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
  • Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt
  • Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann, þar sem örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðunni www.rml.is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is.

Um kynbótasýningar

 

Halla Eygló/Helga