Skil á vorgögnum

Nú er sauðburður vel á veg kominn víða um land og sauðfjárbændur margir hverjir farnir að huga að skráningu vorgagna. Í fyrra var opnað á nýjar skráningar í Fjárvís, þ.e. bæði burðar- og lambaskráningu. Þessum nýju skráningum var ætlað að leysa af hólmi vorbókarformið í Fjárvís, sem er heldur komið til ára sinna. Þar sem vorbókin er orðin mjög gömul og villusækin ef svo má segja mælum við eindregið með því að notendur nýti sér nýju skráningarnar til að skrá vorgögnin. Eitthvað hefur borið á því núna í vor að það gangi illa að vista upplýsingar sem skráðar eru í vorbók, svo það er ljóst að hún er ekki nægilega traust. Ef fólki hugnast illa að nota nýju viðmótin fyrir burðar- og lambaskráningu í Fjárvís mælum við með csv-innlestri. Leiðbeiningar um bæði burðar- og lambaskráningu, sem og csv-innlestur má finna í gegnum tengil hér neðar. 

Sjá nánar: 
Leiðbeiningar um burðar - og lambaskráningu

/okg