Prentun haustbóka mun hefjast strax eftir verslunarmannahelgi. Eins og undanfarin ár munu haustbækur sem prentaðar eru á hefðbundnum tíma verða með uppfærðu kynbótamati. Í fyrstu prentun fara bú sem hafa skilað vorbók 3. ágúst eða fyrr. Næsta prentun verður fyrir bú sem skila 4-16. ágúst og síðasta prentun verður send eftir lokaskiladag vorgagna samkvæmt reglugerð, sem er 20. ágúst. Ekki er hægt að ábyrgjast að stakar haustbækur sem prentaðar eru eftir þann tíma innihaldi uppfært kynbótamat.
Við hvetjum bændur til að skila vorgögnum tímanlega þannig að sem flestar haustbækur komist í fyrstu prentun og þær berist bændum tímanlega fyrir haustverkin.
Þeir bændur sem skila vorbókum inn til skráningar til RML eru hvattir til að koma þeim sem allra fyrst inn til skráningar þannig að tryggt sé að búið sé að skrá þær fyrir 20. ágúst sem er síðasti skiladagur vorgagna samkvæmt reglugerð. Vorbækur til skráningar er best að senda beint á einhverja af eftirfarandi starfsstöðvum RML.
RML, Óseyri 2, 603 Akureyri
RML, Austurvegi 1, 800 Selfossi
RML, Höfðabakka 9, 4 hæð, 110 Reykjavík
/hh