Sköpulagsdómar hrossa – aukinn sveigjanleiki eftir fimm vetra aldur

Þegar þróun sköpulagsdóma er skoðuð kemur í ljós að hross hækka almennt í einkunn með auknum aldri. Sum hross lækka í einkunn af einhverjum ástæðum en langflest hross hækka í einkunn. Þetta er eðlilegt þar sem hrossin styrkjast og þroskast með árunum, auk þess sem rétt þjálfun hefur jákvæð áhrif á útlit þeirra. Mesta breytingin verður yfirleitt á milli fjögurra og fimm vetra aldurs, en eftir það breytist sköpulagsdómur yfirleitt ekki verulega. Þó eru að sjálfsögðu einstaka hross sem breytast meira en önnur. Í ljósi þessa var tekin ákvörðun um að gera sköpulagsdóma valkvæða eftir fimm vetra aldur. Tillaga þess efnis var lögð fyrir aðalfund FEIF í byrjun febrúar og samþykkt þar. Hér á eftir verður gerð grein fyrir því hvaða áhrif þessi breyting hefur.

Skyldubundinn sköpulagsdómur fyrir yngri hross
Samkvæmt nýju fyrirkomulagi þurfa hross sem koma til dóms fjögurra og fimm vetra gömul að fara í sköpulagsdóm áður en þau fara í reiðdóm. Fyrir hross sem eru sex vetra og eldri verður byggingardómur valkvæður, hafi þau áður hlotið byggingardóm fimm vetra eða eldra. Eigendur geta þá valið hvort þeir endurtaki byggingardóm eða nýti fyrri dóm. Ef hross kemur í fyrsta sinn til dóms fimm vetra eða eldra þarf það að lágmarki að hljóta einn byggingardóm; frekari byggingardómar eftir það eru valkvæðir. Þetta þýðir til dæmis að hross sem kemur til dóms fjögurra vetra og aftur sex vetra þarf að fara í sköpulagsdóm við sex vetra aldur, en eftir þann dóm getur eigandi valið hvort byggingardómur sé endurtekinn eða fyrri dómur látinn standa.

Sköpulagsdómur og reiðdómur þurfa ekki að fara fram samtímis
Þá hefur því einnig verið breytt svo að byggingardómur og hæfileikadómur þurfa ekki lengur að fara fram á sömu sýningu til að hross hljóti fullnaðardóm. Hross getur þannig komið í byggingardóm snemma árs, til dæmis í maí, og síðar á árinu í hæfileikadóm. Þegar báðir dómar liggja fyrir telst fullnaðardómur kominn. Byggingardómur þarf að fara fram á undan reiðdómi þegar stefnt er að fullnaðardómi; ekki er heimilt að sýna hross eingöngu til hæfileikadóms án þess að byggingardómur liggi fyrir.

Nýting eldri sköpulagsdóma
Áfram gildir að hross, þar á meðal fjögurra og fimm vetra, geta komið í byggingardóm snemma árs og látið þann dóm standa síðar á sýningarárinu. Nú þarf sá byggingardómur ekki lengur að vera hluti af fullnaðardómi til að nýta hann áfram. Ef eigandi eða sýnandi kýs að nýta eldri byggingardóm á annarri sýningu gildir ávallt nýjasti byggingardómur hrossins. Hafi hross þegar verið fulldæmt á almanaksárinu getur eigandi einnig ákveðið að láta nýjasta byggingardóm standa við endursýningu eins og verið hefur. Þegar ákveðið er að nýta eldri sköpulagsdóm, þá eru einnig áður gerðar skrokkmælingar nýttar, að hófalengd undanskilinni; hófalengd mælist og skráist við hvern dóm.

Markmið breytinganna
Markmið þessara breytinga er fyrst og fremst að skapa aukinn sveigjanleika fyrir eigendur hrossa og spara fjármuni. Ekki er talið að með þeim tapist verðmætar upplýsingar, enda er almennt gert ráð fyrir að flest hross komi endurtekið til byggingardóms, að minnsta kosti fram til sex vetra aldurs. Í íslenskri hrossarækt er safnað afar miklum og verðmætum upplýsingum um hvert einasta hross. Sú gagnasöfnun er einn af styrkleikum kerfisins; hún hjálpar ræktendum að taka upplýstar ákvarðanir og er forsenda rannsókna og áframhaldandi þróunar kynbótakerfisins. Það er ekki talið að þessi breyting nú hafi neikvæð áhrif á þekkingargrunn greinarinnar. Þegar þróun byggingardóma með hliðsjón af aldri var skoðuð kom í ljós að eftir fimm vetra aldur bæta endurteknir byggingardómar yfirleitt litlum nýjum upplýsingum við. Með hliðsjón af því var talið unnt að létta á þessari gagnasöfnun að einhverju marki, án þess að rýra gæði þeirra upplýsinga sem liggja ræktunarstarfinu til grundvallar. Því var ákveðið að stíga þetta skref og gera byggingardóma valkvæða eftir fimm vetra aldur.

/okg