Skráningar á kynbótasýningar vorsins

Þann 18. apríl var opnað á skráningar á allar kynbótasýningar vorsins. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hér í gegnum heimasíðuna en á forsíðunni er tengill sem vísar í "skrá á kynbótasýningu“. Leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu má einnig finna hér á heimasíðunni undir kynbótastarf/hrossarækt/kynbótasýningar.

Hér í töflunni fyrir neðan má sjá síðasta skráningardag á hverja og eina sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Lena Reiher, Halla Eygló Sveinsdóttir og Oddný Kristín Guðmundsdóttir munu leiðbeina þeim sem þess þurfa í síma 516-5000, einnig verður hægt að senda þeim tölvupóst á netföngin lr@rml.is, halla@rml.is og hross@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að hafa tímann fyrir sér frekar en hitt þegar kemur að skráningum á sýningarnar. Hér fyrir neðan má sjá sýningar vorsins og hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur.

Dags. Staður  Loka skráningar- og greiðsludagur
22.5- 26.5 Sörlastaðir, Hafnarfirði föstudagur 12. maí
29.5- 02.6 Melgerðismelar  föstudagur 19. maí
29.5- 02.6 Brávellir, Selfossi föstudagur 19. maí
01.6- 02.6 Iðavellir, Fljótsdalshéraði mánudagur 22. maí
06.6- 09.6 Víðidalur, Reykjavík föstudagur 26. maí
06.6- 16.6 Gaddstaðaflatir, Hellu* föstudagur 26. maí
06.6- 09.6 Borgarnes  föstudagur 26. maí
12.6- 16.6 Sprettur, Kópavogi föstudagur 26. maí
12.6- 16.6 Hólar, Hjaltadal föstudagur 26. maí

 

*Sýningin á Gaddstaðaflötum 6. til 16. júní er tveggja vikna sýning. Við skráningu verður hægt að velja á hvora sýningarvikuna hross eru skráð. Gildir þá það sama og áður hefur komið fram að um leið og önnur sýningarvika fyllist er lokað fyrir skráningar á hana og eigendur/umráðamenn verða að velja hina vikuna. Hægt verður að skrá sama hrossið á báðar vikurnar. 

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast hér á heimasíðunni þegar þær eru klárar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Sýningargjöld og fleira

Verð fyrir fullnaðardóm er 24.500 kr en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 19.000 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er lengur hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð birtist það strax inn á viðkomandi sýningu.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreitt er 14.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 11.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Minnum á eftirfarandi:

  • Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
  • Allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra.
  • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
  • Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt
  • Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann, þar sem örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna hér á heimasíðunni eða með því að hringja í okkur í síma 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.

hes/okg