Skráningarfrestur framlengdur á miðsumarssýningu á Selfossi

Skráningarfrestur á miðsumarssýningu á Selfossi hefur verið framlengdur fram á miðnættis miðvikudagsins 18.júlí. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.rml.is eða www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“.
Allar frekari upplýsingar má fá í síma Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000 eða á heimasíðunni www.rml.is, þar eru t.d. leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið hross@rml.is.

  

sem/ghá