Skráningarfrestur framlengdur til miðnættis föstudag 22. maí

Skráningarfrestur á sýningarnar á Hólum í Hjaltadal 1. til 5. júní, Mið-Fossum 8. til 11. júní, Akureyri 8. til 12. júní og Víðidal 15. til 19. júní hefur verið framlengdur til miðnættis  föstudaginn 22. maí.

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum heimasíðu RML en á forsíðunni er flýtihnappur sem skráð er í gegnum.

Flýtihnappur

Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 516-5000 eða senda tölvupóst á netfangið rml@rml.is.

/hh