Skrifstofa RML á Blönduósi

Vegna fæðingarorlofs starfsmanns er ekki föst viðvera á skrifstofu okkar á Blönduósi.

Skrifstofan verður þó opin á fimmtudögum kl 10-15 frá og með 1. október

Auka viðvera verður á skrifstofunni þriðjudaginn 29. september milli kl 9-16 vegna skila á jarðræktarskýrslum.

 

Varðandi skýrsluhald þá er hægt er að skila gögnum í póstkassann en hann verður tæmdur á þeim dögum þegar viðvera er á skrifstofunni.

Einnig er hægt að skanna inn gögn og senda í tölvupósti á rml@rml.is eða senda þau með pósti á skrifstofu okkar á Akureyri:

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML)
Óseyri 2
603 Akureyri

Hægt er að nálgast örmerkjabækur á Blönduósi þegar skrifstofan er opin. Annars er best að hringja í 516-5000 og fá samband við starfsmann sem sendir þér bók.

Upplýsingar um beina síma og netföng starfsmanna má finna á heimasíðu RML, www.rml.is

 

Með kveðju, starfsfólk RML