Skýrsla um afkomu nautakjötsframleiðenda 2022-2024

Höfundur myndar: Rúnar Þór Ragnarsson, Steinsstöðum og Efstalandi.
Höfundur myndar: Rúnar Þór Ragnarsson, Steinsstöðum og Efstalandi.

Út er komin skýrsla um rekstur og afkomu í nautaeldi fyrir árin 2022-2024 en hún byggir á gögnum frá 36-40 nautgripabúum. Á árinu 2024 var nautakjötsframleiðslan á þessum búum samtals um 24% af framleiðslu ungnautakjöts á landsvísu.

Skýrslan lýsir jákvæðri þróun í afkomu búanna á tímabilinu. Þó að tap sé ennþá á framleiðslu nautakjöts að jafnaði sjást skýr merki um bættan rekstur á þessum árum. Skv. gögnunum var rekstrarafgangur af nautaeldi fyrir afskriftir, skatta og fjármagnsliði (EBITDA) um 196 kr./kg kjöts árið 2022. Árið 2024 var hann um 424 kr./kg og hafði þá ríflega tvöfaldast frá árinu 2022. Munar þar verulega um hækkað afurðaverð, bætta nýtingu aðfanga, kynbætur og einskiptisgreiðslur úr ríkissjóði.

Eitt stærsta sóknarfærið í nautaeldinu á næstu árum er kyngreining á nautasæði. Með þeirri aðferð er hægt að nýta stærri hluta íslenska mjólkurkúastofnsins til að framleiða hagkvæmari gripi fyrir nautaeldi til kjötframleiðslu. Til að það sóknarfæri nýtist vel er mikilvægt að vel takist til í samvinnu mjólkurframleiðenda og þeirra sem vilja sérhæfa sig í nautaeldi.

Skýrsluna sem um ræðir má finna hér.