Starf fagstjóra búfjárræktar- og þjónustusviðs

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir fagstjóra búfjárræktar- og þjónustusviðs. Um er að ræða stjórnendastarf á öðru af tveimur
fagsviðum í nýju skipuriti.

Starfs- og ábyrgðarsvið:

  • Faglegur leiðtogi og fyrirliði teymis sem vinnur að búfjárrækt og þjónustu í landbúnaði.
  • Fagsviðið hefur meðal annars umsjón með ræktunarstarfi búfjárkynja, almennri þjónustu og ráðgjöf til landbúnaðar.
  • Fagstjóri ber lykilábyrgð á stýringu mannauðs og gætir þess að ráðgjafar á sviðinu nýtist sem best fyrir heildina.
  • Fagstjóri ber ábyrgð á að innan teymisins séu verkefni og ráðgjöf markviss.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði búvísinda, raungreina eða náttúruvísinda æskileg.
  • Stjórnunarreynslu krafist.
  • Þekking á verkefnastjórnun er kostur.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góðir samskiptahæfileikar.

Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á landbúnaði í sínum víðasta skilningi og hefur metnað og frumkvæði til að vinna að ráðgjafastarfsemi RML. 

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda og sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um
landið á 13 starfsstöðvum.

Við bendum áhugasömum á að hægt er kynna sér starfsemi RML enn frekar hér í gegnum heimasíðuna. Jafnframt er sótt um starfið í gegnum heimasíðuna, sjá tengil neðar. 

Umsóknarfrestur er til og með 5. mars.

Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson hjá klk@rml.is og Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir hjá geh@rml.is.

Sjá nánar

Sækja um starf hjá RML

klk/okg