Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir fagstjóra búfjárræktar- og þjónustusviðs.
Starfs- og ábyrgðarsvið
- Faglegur leiðtogi og fyrirliði teymis sem vinnur að búfjárrækt og þjónustu í landbúnaði.
- Fagsviðið hefur meðal annars umsjón með ræktunarstarfi búfjárkynja, almennri þjónustu og ráðgjöf til landbúnaðar.
- Fagstjóri ber lykilábyrgð á stýringu mannauðs og gætir þess að ráðgjafar á sviðinu nýtist sem best fyrir heildina.
- Fagstjóri ber ábyrgð að innan teymisins séu verkefni og ráðgjöf markviss.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði búvisinda, raungreina, eða náttúruvísinda æskileg.
- Stjórnunarreynslu krafist.
- Þekking á verkefnastjórnun er kostur.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Góðir samskiptahæfileikar.
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á landbúnaði í sínum víðasta skilningi og hefur metnað og frumkvæði til að vinna að ráðgjafastarfsemi RML.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda og sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið á 12 starfsstöðvum. Við bendum áhugasömum á að skoða heimasíðu RML en þar er hægt að kynna sér starfsemina enn frekar. Einnig er sótt um starfið í gegnum heimasíðuna, sjá tengil hér neðar.
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars. Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson klk@rml.is og Helga Halldórsóttir heh@rml.is.
Sjá nánar:
Sækja um starf hjá RML
/okg