Starf forritara hjá RML

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir forritara sem gæti sinnt fjölbreyttum þróunar- og hugbúnaðarverkefnum í landbúnaði


Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Þátttaka í þróunarteymum RML sem sinna hugbúnaðargerð og upplýsingatækni.
  • Vinna við hugbúnaðargerð vefforrita RML.
  • Vinna við Oracle gagnagrunna.
  • Önnur verkefni s.s. líkanagerð í Excel og þróunarverkefni.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Þekking eða framhaldsmenntun á sviði tölvunarfræði eða verkfræði.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Þekking á verkefnastjórnun kostur sérstaklega Agile/Scrum aðferðafræði.
  • Góðir samskiptahæfileikar.
  • Æskileg reynsla

- Python, Django og Linux
- Java
- Javascript, jQuery o.fl.
- Oracle – PL/SQL

Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á tölvunarfræði í sínum víðasta skilningi og hefur metnað og frumkvæði til að vinna að þróun á hvers kyns tæknilausnum fyrir landbúnað. Gert er ráð fyrir að starfsstöð viðkomandi verði á Akureyri en aðrar staðsetningar á starfstöðvum RML kæmu einnig til greina.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið. Við bendum áhugasömum á heimasíðu fyrirtækisins www.rml.is þar sem sótt er um starfið, en þar er einnig hægt að kynna sér starfsemina enn frekar.

Umsóknarfrestur er til og með 10. september.

Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri klk@rml.is og Þorberg Þ. Þorbergsson verkefnastjóri á fjármála og tæknisviði thorberg@rml.is.