Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir ráðgjafa sem gæti sinnt fjölbreyttu ráðgjafar- og þróunarstarfi á sviði landbúnaðar.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Starf í ráðgjafateymi RML.
- Þróun og sala á fjölbreyttri ráðgjöf á landsvísu í samstarfi við annað starfsfólk RML.
- Þróunar og ráðgjafavinna tengd tækniþróun og umhverfismálum í landbúnaði.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði raungreina, náttúruvísinda tækni eða hagfræði æskileg.
- Þekking á forritun og gagnavinnslu er kostur.
- Þekking á verkefnastjórnun og aðferðafræði LEAN er kostur.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Geta til að vinna undir álagi.
- Góðir samskiptahæfileikar.
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á landbúnaði í sínum víðasta skilningi sem hefur metnað og frumkvæði til að vinna að ráðgjafastarfsemi RML.
Gert er ráð fyrir að starfsstöð viðkomandi verði á Akureyri eða Selfossi.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið á 13 starfsstöðvum.
Við bendum áhugasömum á að hægt er kynna sér starfsemi RML enn frekar hér í gegnum heimasíðuna. Jafnframt er sótt um starfið í gegnum heimasíðuna, sjá tengil neðar.
Umsóknarfrestur er til og með 15. september.
Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson klk@rml.is og Berglind Ósk Óðinsdóttir boo@rml.is.
Sjá nánar:
Sækja um starf hjá RML