Starfsdagar RML haldnir dagana 22.-24. nóvember á Selfossi

Starfsdagar eru yfirleitt haldnir 1x á ári í byrjun vetrar. Hæst ber á þessum starfsdögum afmælisráðstefnu RML sem er frá kl. 10.00 – 15:15 fimmtudaginn 23. nóvember.
Vegna starfsdagana verður takmörkuð eða engin viðvera á flestum starfsstöðum og síminn ekki opinn frá kl. 12.00 miðvikudaginn 22. nóvember.

Síminn er lokaður:
 - Miðvikudag 22. nóvember kl. 12-16
 - Fimmtudag 23. nóvember allan daginn
 - Föstudag 24. nóvember 9-12

Hefðbundin starfsemi verður að nýju mánudaginn 27. nóvember og síminn þá opinn samkvæmt venju.
Við bendum á netfangið okkar rml@rml.is ef koma þarf skilaboðum á framfæri og jafnframt eru netföng starfsmanna á heimasíðunni.

Hlekkur með upplýsingum um streymi af ráðstefnunni verður settur inn á heimasíðuna að morgni fimmtudags 23. nóvember. Auglýstri dagskrá fyrir hádegi verður streymt.

 /hh