Stóðhestaskýrslur / fyljunarvottorð

Ágætu stóðhestahaldarar og hryssueigendur. Nú fer í hönd enn eitt spennandi hrossa-ræktarsumar og mikill fjöldi áhugaverðra stóðhesta í boði fyrir ræktendur. Minnt er á þá áhvílandi skyldu að stóðhestahaldarar (umsjónarmaður eða eigandi hests) skili samviskusamlega útfylltum stóðhestaskýrslum til starfsstöðva RML fyrir árslok, 31. desember 2019. Þar komi fram allar hryssur sem voru leiddar undir viðkomandi hesta, hvort heldur sónarskoðun er notuð til að staðfesta fyljun eður ei og hvort sem hryssur reynast fyljaðar eða ekki.

Þá geta hryssueigendur, eða stóðhestahaldarar, einnig tryggt þessa mikilvægu skráningu með því að skila inn vel útfylltum og undirrituðum fyljunarvottorðum sem þjóna sama tilgangi.

Samkvæmt ákvæðum Reglugerðar um uppruna og ræktun íslenska hestsins nr. 442 / 2011, 5. grein, er óheimilt að nýskrá folöld í upprunaættbókina WorldFeng ef fyljunarskráning móður liggur ekki fyrir, nema til komi ætternisgreining með DNA-sýni.

Við minnum sérstaklega á valpörun í WorldFeng sem er kjörið verkfæri ræktenda til að átta sig á innbyrðis skyldleika hrossa við mismunandi pörunarkosti. Í því sambandi er vert að hafa í huga, sem almenna leiðbeiningu og varnagla í búfjárrækt, að reiknaður skyldleikaræktarstuðull (táknað sem F%) mögulegs afkvæmis fari ekki yfir 5%. Það er sérstakt og mikilsvert keppikefli í litlum hrossastofni, svo sem íslenski hesturinn er, að viðhalda sem mestum erfðafjölbreytileika og vinna markvisst gegn mikilli innbyrðis skyldleikaaukningu í stofninum. Fjölbreytnin er forsenda alls úrvals og ræktunarstarfs, eldsneytið inn í langa framtíð.

Þá hvetjum við alla þá sem eignast folöld í vor og sumar til að láta örmerkja þau strax, þar er ekki eftir neinu að bíða. Enn fremur að engin ómerkt folöld fylgi mæðrum inn í stóðhestagirðingar. Allir vilja fara með sitt folald heim í lok tímabils, en ekki annarra.

Sjá nánar

Stóðhestaskýrsla

Fyljunarvottorð

ph/okg