Stöðulisti kynbótahross á Landsmóti hestamanna 2022

Alls eru 171 hross sem eiga þátttökurétt á Landsmóti hestamanna í kynbótadóm þetta árið.

Stöðulista kynbótahrossa má finna á WorldFeng undir „Sýningarskrá fyrir landsmót“. Listinn hefur reyndar aðeins breyst, þar sem örfá hross hafa verið afskráð og önnur hross því fæst upp í stað þeirra, búið er að hafa samband við eigendur þessara hrossa.

Á hádegi á morgun, föstudaginn 24. júní, þarf endanlegur listi að liggja fyrir, þannig ef einhverjir hyggjast afskrá hross út úr kynbótahluta LM þurfum við af vita af því fyrir kl. 12:00 á morgun svo hægt verði að bjóða öðrum þátttöku í staðinn.

/SEM