Tafir á sýnatöku vegna erfðamengisúrvals

Í haust kynntum við að fyrirhugað væri að hefja DNA-sýnatöku úr öllum kvígum vegna erfðamengisúrvals í nautgriparækt nú um áramótin. Því miður verða tafir á þeirri fyrirætlan þar sem unnið er að uppfærslu búnaðar í Noregi til þess að geta framleitt viðkomandi merki fyrir Ísland. Vonast er til þess að framleiðsla geti hafist fyrir lok febrúar.

Merkin sem um ræðir eru svokölluð TST-merki sem eru með áföstu sýnaglasi þannig að DNA-sýnataka fer fram um leið og merki eru sett í kvígurnar. 

Margir bændur eru í þeirri stöðu nú að kálfamerki búsins eru uppurin þessa dagana. Þrátt fyrir fyrirætlanir um önnur merki fyrir kvígur er ekki rétt að bíða með merkjapantanir en stilla þó kannski magni í hóf. Það er þó rétt að hafa í huga að þau merki sem pöntuð eru núna, það er hefðbundin merki án sýnatökuglass, munu áfram nýtast til merkingar á nautkálfum.

Nánari upplýsingar gefur Guðmundur Jóhannesson, netfang: mundi@rml.is.