„Þegar halla að hausti fer, heiðin kallar löngum“

Gróður er enn í fullum sumarskrúða en það styttist í göngur, réttir og önnur hauststörf. Sláturhúsin eru eflaust farin að kalla eftir sláturfjárloforðum og tímasetning á fjárragi farin að skýrast hjá mörgum bændum. Við viljum minna á að panta lambadóma fyrr en seinna svo skipuleggja megi þessa vinnutörn með sem hagkvæmustum hætti fyrir alla. Eins og áður hefur komið fram njóta pantanir sem berast fyrir 21. ágúst forgangs hvað varðar óskatímasetningu hjá hverjum og einum.

Skipulag lambadóma á komandi hausti verður í höndum eftirtalinna starfsmanna:

  • Árni Brynjar Bragason og Oddný Kristín Guðmundsdóttir: Gullbringu- og Kjósarsýsla, Borgarfjörður, Snæfellsnes, Dalasýsla, Barðastrandarsýslur og Ísafjarðarsýslur
  • Sigríður Ólafsdóttir: Strandasýsla og Vestur-Húnavatnssýsla
  • Auður Ingimundardóttir: Austur-Húnavatnssýsla
  • Ditte Clausen: Skagafjörður og Eyjafjörður
  • Guðrún Hildur Gunnarsdóttir: Suður-Þingeyjarsýsla
  • Steinunn Anna Halldórsdóttir: Norður-Þingeyjarsýsla
  • Guðfinna Harpa Árnadóttir: Múlasýslur
  • Fanney Ólöf Lárusdóttir: Skaftafellsýslur, Rangárvallasýsla og Árnessýsla

Sjá nánar:
Frétt um lambadóma frá 7. júlí
Panta lambadóma

/okg