Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, Ræktunarbú ársins. Valið stóð á milli 50 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Reglur fagráðs um ræktunarbú ársins má finna á heimasíðu Félags hrossabænda, fhb.is. Tilnefnd eru 12 efstu bú ársins að loknum útreikningi. Í ár voru þrjú bú jöfn í tólfta sæti og eru búin því 13 í ár. Tilnefnd bú hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2020 sem haldin verður rafrænt að þessu sinni laugardaginn 12. desember næstkomandi.
Í stafrófsröð eru tilnefnd bú:
- Efri-Fitjar, Gréta Brimrún Karlsdóttir, Gunnar Þorgeirsson og Tryggvi Björnsson
- Efsta-Sel, Daníel Jónsson og Hilmar Sæmundsson
- Fet, Karl Wernersson
- Flagbjarnarholt, Bragi Guðmundsson, Valgerður Þorvaldsdóttir, Sveinbjörn Bragason, Þórunn Hannesdóttir og fjölskylda
- Garðshorn á Þelamörk, Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius
- Hjarðartún, Óskar Eyjólfsson
- Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble
- Prestsbær, Inga og Ingar Jensen
- Ragnheiðarstaðir, Helgi Jón Harðarson og fjölskylda
- Skagaströnd, Þorlákur Sigurður Sveinsson og Sveinn Ingi Grímsson
- Skipaskagi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir
- Torfunes, Baldvin Kr. Baldvinsson
- Þúfur, Mette Mannseth og Gísli Gíslason
Fagráð í hrossarækt óskar tilnefndum búum innilega til hamingju með frábæran árangur.
/okg