Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins. Valið stóð á milli 70 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Í reglum er tekið fram að tilnefna skal 12 efstu búin árlega en búin eru 13 í ár þar sem tvö bú eru jöfn í tólfta sæti. Reglur fagráðs um ræktunarbú ársins má finna inn á heimasíðu Bændasamtaka Íslands, bondi.is. Tilnefnd bú munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2026 sem haldin verður í reiðhöll Spretts laugardaginn 7. nóvember næstkomandi og byrjar kl. 13:00.
Í stafrófsröð eru tilnefnd bú:
- Auðsholtshjáleiga, Gunnar Arnarson, Kristbjörg Eyvindsdóttir og fjölskylda
- Berg, Anna Dóra Markúsardóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson
- Efsta-Sel, Daníel Jónsson, Bertha María Waagfjörð og Hilmar Sæmundsson
- Fet, Anton Páll Níelsson, Bylgja Gauksdóttir og Ólafur Andri Guðmundsson
- Flagbjarnarholt, Bragi Guðmundsson, Valgerður Þorvaldsdóttir, Sveinbjörn Bragason og Þórunn Hannesdóttir
- Grund II, Ólöf Stefánsdóttir og Örn Stefánsson
- Hemla II, Lovísa Herborg Ragnarsdóttir, Vignir Siggeirsson og fjölskylda
- Hestklettur/Prestbær, Inga Jenssen, Ingar Jenssen, Sigríður Gunnarsdóttir og Þórarinn Eymundsson
- Margrétarhof, Reynir Örn Pálmason og Montan fjölskyldan
- Skálakot, Guðmundur J. Viðarsson, Jóhanna S. Þórhallsdóttir og fjölskylda
- Skipaskagi, Jón Árnason, Sigurveig Stefánsdóttir og fjölskylda
- Sumarliðabær 2, Birgir Már Ragnarsson og Silja Hrund Júlíusdóttir
- Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth
Fagráð í hrossarækt óskar tilnefndum búum innilega til hamingju með frábæran árangur.
/okg