Hrímnir 24035 frá Tannstaðabakka í Hrútafirði. Mynd: NBÍ
Nú koma þrettán ný naut til notkunar og þar af stendur kyngreint sæði (X-sæði) til boða úr sjö þeirra auk þess sem aftur kemur slíkt sæði til dreifingar úr Jöfri 24010. Þá mun Y-sæði, þ.e. sæði sem gefur nautkálfa, standa til boða úr fjórum þessara nauta en það er nýjung. Við skulum fyrst fara yfir hvaða naut fara úr notkun og hver verða áfram í dreifingu. Úr dreifingu verða teknir Meistari 23038, Draupnir 23040, Stjóri 23041, Bolli 24002, Valens 24003, Biggi 24004, Hálsi 24006, Sjafnar 24007, Kládíus 24011, Tumi 24014 og Andi 24015. Þeir teljast allir annað hvort fullnotaðir eða náðu ekki þeim vinsældum að ástæða sé til að hafa þá áfram í notkun. Þau naut sem verða áfram í dreifingu eru Oddi 24008, Alur 24009, Jöfur 24010, Versalur 24017 og Nemó 24018. Rétt er að taka fram að verulega er farið að ganga á birgðir úr sumum þeirra.
Nautin sem koma ný til nota eru, eins og áður sagði, þrettán talsins. Eins og ætíð er reynt að hafa faðerni þeirra sem dreifðast en þetta eru eftirtalin naut (innan sviga má sjá sæðistegund, V=venjulegt, X=kyngreint (kvígur), Y=kyngreint (naut)): Tríton 24016 (V) frá Birtingaholti 1 í Hrunamannahreppi undan Kalda 21020 og Aríel 2395 Jörfadóttur 13011, Jenni 24019 (V, X, Y) frá Sigtúnum í Eyjafirði undan Billa 20009 og Hönnu 1171 Jörfadóttur 13011, Nökkvi 24020 (V, X, Y) frá Engihlíð í Vopnafirði undan Títan 17036 og Sunnu 1189 Smyrilsdóttur 19005, Milli 24021 (V) frá Bryðjuholti í Hrunamannahreppi undan Magna 20002 og Þúsund 1000 Hælsdóttur 14008, Frakkur 24022 (V) frá Hátúni 1 í Skagafirði undan Óðni 21002 og Frökk 1328 Hælsdóttur 14008, Fennill 24023 (V, X) frá Espihóli í Eyjafirði undan Óðni 21002 og 1243 Piparsdóttur 12007, Hlynur 24024 (V) frá Svertingsstöðum 2 í Eyjafirði undan Magna 20002 og Eik 1421 Tannadóttur 15065, Sóli 24025 (V, X) frá Hjarðarfelli á Snæfellsnesi undan Mjölni 21025 og Maísól 721 Starradóttur 18037, Kandís 24026 (V, X, Y) frá Stóra-Dunhaga í Hörgárdal undan Þrym 22027 og Andí 1468 Bússadóttur 19066, Valur 24027 (V) frá Ketilsstöðum í Hjaltastaðaþinghá undan Billa 20009 og Gránu 2733 Piparsdóttur 12007, Flaumur 24028 (V, X, Y) frá Syðra-Hóli í Skagabyggð undan Flamma 22020 og 805 Jörfadóttur 13011, Gilli 24031 (V) frá Þorgautsstöðum í Hvítársíðu undan Ægi 22010 og Gilitrutt 402 Sjarmadóttur 12090 og Hrímnir 24035 (V, X) frá Tannstaðabakka í Hrútafirði undan Ægi 22010 og Prinsessu 860 Kópsdóttur 16049.
Upplýsingar um þessi naut eru komnar á nautaskra.is en sæði úr þeim er á leið í dreifingu. Fyrstu frjótæknar verða komnir með það í kúta sína á morgun eða föstudaginn og síðan mun það berast hverjum af öðrum fram í næstu viku. Við biðjum menn að sýna þolinmæði en dreifing sæðis um landið allt tekur ávallt nokkurn tíma.
Varðandi kyngreint sæði er rétt að hafa í huga að Y-sæði er einkum hugsað til nota á úrvalskýr og -kvígur stofnsins, yfirburðagripi sem fengur væri að nautkálfi á stöð undan til þess að feðra næstu kynslóð. Þá verður því ekki neitað að árangur með kyngreindu sæði hefur fram að þessu verið undir væntingum og eðlilegt að velta fyrir sér hvaða ástæður geta legið að baki. Ljóst er að nokkur bú hafa náð mjög góðum árangri með þessu sæði og dæmi um yfir 80% 56 daga ekki uppbeiðsli. Þegar maður sér slíkar tölur fer maður ósjálfrátt að velta fyrir sér hvað gera þessir bændur öðruvísi en hinir. Ég vil því biðja hvern og einn bónda að leggja höfuðið í bleyti og spyrja sjálfan sig hvort það sé eitthvað í sæðingaferlinu á búinu sem betur má fara, fara yfir leiðbeiningar, ræða við frjótækna, ráðunauta og dýralækna og leita þannig leiða til bætts árangurs. Með samstilltu átaki allra sem að koma getum við náð árangri með þessu sæði eins og öðru. Það sem til þarf er nákvæmni, agi og vönduð vinnubrögð.