Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins. Valið stóð á milli 32 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu.
Tilnefnd eru 12 efstu bú ársins að loknum útreikningi en í ár voru þrjú bú jöfn í tólfta sæti og eru búin því 14 í ár. Reglur fagráðs um ræktunarbú ársins má finna inn á heimasíðu Félags hrossabænda, fhb.is.
Tilnefnd bú munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2021 þann 28. nóvember sem vegna samkomutakmarkana verður streymt. Ræktunarbú ársins verður verðlaunað á þeim viðburði.
Tilnefnd bú eru eftirfarandi í stafrófsröð:
- Austurás, Haukur Baldvinsson, Ragnhildur Loftsdóttir og fjölskylda
- Efri-Fitjar, Gréta Brimrún Karlsdóttir, Gunnar Þorgeirsson, Tryggvi Björnsson og fjölskylda
- Efsta-Sel, Daníel Jónsson, Hilmar Sæmundsson
- Fákshólar, Jakob Svavar Sigurðsson, Helga Una Björnsdóttir, Fákshólar ehf
- Flugumýri, Eyrún Ýr Pálsdóttir og Teitur Árnason
- Garðshorn á Þelamörk, Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius
- Hemla II, Vigni Siggeirsson, Lovísa Herborg Ragnarsdóttir og fjölskylda
- Hjarðartún, Óskar Eyjólfsson og fjölskylda
- Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble
- Prestsbær, Inga og Ingar Jensen
- Ragnheiðarstaðir, Helgi Jón Harðarson og fjölskylda
- Sauðanes, Ágúst Marinó Ágústsson og fjölskylda
- Skipaskagi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir
- Stuðlar, Edda Björk Ólafsdóttir og Páll Stefánsson
/hh