Tíunda íslenska kýrin til að ná 100 þús. kg æviafurðum

Snotra 273 í Villingadal í Eyjafirði. Mynd: Guðrún Jónsdóttir.
Snotra 273 í Villingadal í Eyjafirði. Mynd: Guðrún Jónsdóttir.

Við mjaltir nú í morgun (18. júní 2025) rauf afrekskýrin Snotra 273 í Villingadal í Eyjafirði 100 þús. kg múrinn í æviafurðum og varð þar með tíunda íslenska kýrin til að ná þeim merka áfanga. Þetta er töluvert afrek hjá kú af kyni þar sem meðalafurðir eru um 6.500 kg á ári og í raun á sama skala og þegar að Holstein-kýr ná 200 þús. kg markinu. Snotra 273 er fædd 10. nóvember 2010, dóttir Sigurfara 08041 frá Hjarðarfelli á Snæfellsnesi og Leistu 249 Ljúfsdóttur 05040 en hann var frá Núpstúni í Hrunamannahreppi. Snotra átti sinn fyrsta kálf 22. janúar 2013 og hefur síðan þá borið 10 sinnum. Afkvæmin eru því orðin ellefu talsins, þar af fimm kvígur. Snotra hafði um síðustu mánaðamót mjólkað 99.507 kg yfir ævina og við síðustu mælingu núna í júní var hún í 28,5 kg. Samkvæmt því mjólkaði hún sitt 100 þúsundasta kg við mjaltir í Villingadal í morgun.

Snotra er að sögn ábúenda í Villingadal, þeirra Guðrúnar Jónsdóttur og Árna Sigurlaugssonar, „sómakýr en skapsterk, heldur sér vel og er með fína fætur/klaufir. Á sinni löngu ævi hefur henni sjaldan orðið misdægurt og reynst okkur því mjög vel.“ Snotra hefur verið fremur tímasæl og haldið nokkuð reglulegum tíma milli burða eða 12-17 mánuðum. Síðast bar hún 24. júlí 2024 og er farin að nálgast 11 þús. kg á yfirstandandi mjólkurskeiði sem er hið ellefta í röðinni. Hæsta dagsnyt Snotru á núverandi mjólkurskeiði er 47,0 kg í september s.l. en hæsta dagsnyt hennar frá upphafi mældist 54,0 kg þann 16. febrúar 2022. Mestu afurðir á einu mjólkurskeiði hjá Snotru eru 14.043 kg á því níunda en mestu afurðir á einu almanaksári eru 13.569 kg árið 2022. Meðalefnahlutföll mjólkur yfir ævina hjá Snotru eru 4,37% fita og 3,35% prótein og því hefur hún skilað hátt í átta tonnum verðefna hingað til. Þá verður ekki annað sagt en Snotra hafi verið júgurhraust gegnum tíðina en af 122 kýrsýnum hafa aðeins tvö sýnt háa frumutölu og 79 sýni frumutölu innan við 100 þús. í ml.

Það er full ástæða til að óska ábúendum í Villingadal til hamingju með þessa farsælu og endingargóðu kú sem Snotra hefur reynst vera.