Umsóknir um jarðræktarstyrki í garðyrkju

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktunar á grænmeti, kartöflum og garðávöxtum til manneldis.

Umsóknum skal skilað eigi síðar en 15. ágúst næstkomandi í Afurð.is.

Skilyrði fyrir veitingu stuðnings er fullnægjandi túnkort og jarðræktarskýrsla í Jörð.is. Vakin er athygli á því að hægt er að skila skýrslu og sækja um styrkinn án þess að endanleg uppskera liggi fyrir.

Þeir sem þurfa aðstoð við skýrsluhaldið í Jörð.is svo sem við að teikna upp garðlönd er bent á að senda tölvupóst á skyrsluhald@rml.is eða hafa samband í síma 516-5000.

Sjá nánar hér Stjórnarráðið | Auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju

/hh