Umsóknir um styrki úr Stofnverndarsjóði íslenska hestakynsins

Frá Bændasamtökum Íslands:

Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 1123/2015 um sama efni. Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna í hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í íslenska hrossastofninum, verndun erfðafjölbreytileika stofnsins og/eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans. Fagráð í hrossarækt auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar. Fagráð tekur ákvörðun um styrkveitingar í júní 2020. Nánari upplýsingar fást hjá Bændasamtökunum.

Frestur til að skila inn umsóknum er til 19. júní 2020 og skal umsóknum skilað til: 
Fagráð í hrossarækt, Bændahöllinni v/Hagatorg, 107 Reykjavík.

þk/okg