Niðurstöður úr afurðaskýrslum nautgriparæktarinnar fyrir ágúst

Stuðull frá Skollagróf í Hrunamannahreppi, undan Hálfmána 13022 og Sólbrá 597
Stuðull frá Skollagróf í Hrunamannahreppi, undan Hálfmána 13022 og Sólbrá 597

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir ágústmánuð, hafa verið birtar á vef okkar. Þess má geta að niðurstöður skýrslnanna frá mjólkurframleiðendum byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var að morgni þ. 14. september 2020.

Þegar niðurstöðurnar sem nú hafa verið birtar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 517 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 107 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 25.015,1 árskýr á búunum 517 var 6.503 kg eða 6.798 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á búunum 517 var 48,4.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var mest á Hurðarbaksbúinu ehf. á Hurðarbaki í Flóa, þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.711 kg. Annað í röðinni var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalnyt árskúa var 8.688 kg. Þriðja búið í röðinni nú var bú Friðriks Þórarinssonar á Grund í Svarfaðardal þar sem meðalnyt árskúnna reiknaðist 8.509 kg. Fjórða búið að þessu sinni var bú Eggerts, Jónu, Páls og Kristínar á Kirkjulæk 2 í Fljótshlíð en meðalnyt árskúa þar reiknaðist 8.427 kg. á tímabilinu. Þessi fjögur bú eru hin sömu og fyrir mánuði. Fimmta í röðinni að þessu sinni var bú Hrepphóla ehf. í Hrepphólum í Hrunamannahreppi þar sem reiknuð meðalnyt árskúa reyndist 8.219 kg. á tímabilinu.

Nythæsta kýrin sl. 12 mánuði var Staka 1321 (f. Sandur 07014) í Skáldabúðum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en nyt hennar var 14.493 kg. Önnur í röðinni nú var Ása 501 (f. Pipar 12007) á Litlu-Reykjum í Flóa sem mjólkaði 13.892 kg. Þriðja kýrin í röðinni eftir nyt að þessu sinni var Smuga 465 (f. Síríus 02032) í Ytri-Hofdölum í Skagafirði sem mjólkaði 13.751 kg. síðustu 12 mánuði. Fjórða reyndist vera Fimma 1245 (f. Hrókur 708, undan Þrym 02042) í Skáldabúðum eins og Staka, en Fimma skilaði 13.496 kg. á þeim 12 mánuðum sem uppgjörið nær til. Fimmta var Gullbrá 518 í Ytri-Skógum undir Austur-Eyjafjöllum (f. Gyllir 03007) en nyt hennar var 13.279 kg.

Alls náðu 158 kýr á búunum 517, sem afurðaskýrslum fyrir ágúst hafði verið skilað frá að morgni þ. 14. september að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 35 nyt yfir 12.000 kg. á tímabilinu og þar af náðu níu kýr að mjólka 13.000 kg. og þar yfir. Ein þeirra mjólkaði síðan umtalsvert meira en 14.000 kg. á umræddu tímabili.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 26,4 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 20,8. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.343,9 kg.

Meðalfallþungi 9.235 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 246,4 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 745,4 dagar.

 Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk