Upplýsingar vegna útsendinga á haustbók

RML hefur fengið ábendingar um að hluti bænda hafi ekki fengið haustbækur sínar afhentar þrátt fyrir að þær hafi verið sendar í prentun og dreifingu. Því miður virðist að í einhverjum tilfellum hafi komið upp annmarkar í dreifingarferlinu. Unnið er að því að fara yfir stöðuna og tryggja að allir sem eiga að fá bók fái hana afhenta sem fyrst.

Þeir bændur sem hafa ekki fengið haustbókina sína eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við RML með tölvupósti á rml@rml.is og tilgreina nafn bús og búsnúmer.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið og þökkum sýndan skilning.

/hh