Vænting 1271 í fjósinu í Gunnbjarnarholti í desember 2025. Mynd: Berglind Bjarnadóttir.
Afrekskýrin Vænting 1271 í Gunnbjarnarholti í Eystrihreppi rauf 100 þús. kg múrinn nú í lok febrúar og er þar með ellefta íslenska kýrin til að gera slíkt. Vænting er fædd 17. apríl 2013 í Skáldabúðum en flutti aðsetur sitt við flutning búsins að Gunnbjarnarholti á sínum tíma. Hún hafði nú um mánaðamótin febrúar/mars mjólkað 100.158 kg mjólkur. Við mælingu 28. febrúar s.l. var Vænting í 18,6 kg dagsnyt þannig að hún hefur að öllum líkindum mjólkað sínu 100 þúsundasta kg mjólkur þann 20. febrúar eða þar um bil. Vænting er dóttir Hróks 1665491-0708 sem var undan Þrym 02042 sem var Kaðalssonur 94017 frá Tóftum í Stokkseyrarhreppi hinum forna. Móðir Væntingar hét Eik 366 og var Stöðulfelli í Eystrihreppi. Eik var afbragðskýr, fór iðulega í 40-50 kg dagsnyt og náði tvisvar yfir 50 kg dagsnyt. Vænting bar fyrst 5. júlí 2015 og hefur síðan borið 8 sinnum, síðast 1. desember 2024. Mestum afurðum á ári hingað til náði Vænting árið 2022, 11.734 kg en mestu mjólkurskeiðsafurðir eru 17.254 kg á því áttunda. Þetta eru miklar afurðir en til þess að setja þetta í samhengi jafngilda afurðir Væntingar því að hún hafi mjólkað 25,8 kg á hverjum einasta degi frá því að hún bar fyrsta kálfi. Vænting heldur sér vel miðað við aldur og fyrri störf en væntanlega er þetta hennar síðasta mjólkurskeið þrátt fyrir það því henni hefur ekki verið haldið.
RML óskar ábúendum í Gunnbjarnarholti til hamingju með þennan farsæla og endingargóða grip sem Vænting er.