Við viljum hvetja sauðfjárbændur sem ekki hafa ennþá sent sent DNA sýni inn vegna riðuarfgerðagreininga til að gera það.
- Bændur á Vestur- og Norðurlandi senda sýni á RML, Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi
- Bændur á Austur- og Suðurlandi senda sýni á RML , Höfðabakka 9, 4 hæð, 110 Reykjavík
Varðandi niðurstöður arfgerðagreininga er vert að ítreka
- Athugið að mjög mikilvægt er að búið sé að forskrá sýni þegar þau eru send inn til greiningar
- Allar niðurstöður greininga eru lesnar inn í Fjárvís þegar þær berast frá greiningaraðila.
- Ekki er víst að niðurstaða komi á öll sýni frá bæjum í einu, möguleiki er að það komi í tveimur til þremur innlestrum allt eftir stöðu greininga hjá Matís. Einnig getur verið að sýnið sé í endurtekningu. Tóm og ónýt sýni eru einnig lesin inn reglulega þegar ljóst er að ekki mun takast að fá niðurstöðu á viðkomandi sýni.
- Gripir sem fá ekki flögg heldur svart spurningamerki í Fjárvís hafa fengið niðurstöðu og passar arfgerðargreining grips ekki við arfgerðir foreldra eða fyrri greiningu grips. Kanna þarf foreldra eða hvort rétt sýni hafi verið skráð á gripinn. Ef ekki er um ranga skráningu að ræða þarf að taka nýtt sýni úr gripnum og senda inn
- Sýnataka getur misheppnast, hylki verið tómt eða ógreinanlegt og kemur þá rautt upphrópunarmerki við það sýni, sem gefur til kynna að ekki hafi verið hægt að greina sýnið og því þar að endurtaka sýnatöku úr viðkomandi grip.
- Þeir sem ekki hafa aðgang að Fjárvís verða að hafa samband við RML og óska eftir því að fá niðurstöður sendar í tölvupósti. Niðurstöður greininga í sumar verða sendar út í kringum miðjan ágúst. Senda skal beiðni á netfangið dna@rml.is og óska þar eftir niðurstöðum. Þetta er gjaldskyld þjónusta.
Allar fyrirspurnir vegna riðuarfgerðagreininga er best að senda á dna@rml.is
/hh