Verð á arfgerðargreiningum nautkálfa

Einhverjir hafa tekið eða hafa hug á að taka DNA-sýni úr nautkálfum með það í huga að velja naut til notkunar heima á viðkomandi búi eða búum. Arfgerðargreiningar á nautum, öðrum en þeim sem verið að skoða til töku á nautastöð, eru ekki kostaðar af sameiginlegum fjármunum verkefnisins um erfðamengisúrval og verða því innheimtar sérstaklega. Gjald fyrir hverja arfgerðargreiningu nautkálfs hefur verið ákveðið kr. 7.000 sem er kostnaðarverð fyrir greiningu og umsýslu.