Við auglýsum eftir ráðunaut

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir ráðunaut

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Starf í ráðgjafateymi RML.
  • Fjölbreytt ráðgjöf með áherslu á nautgriparækt.
  • Þróun og sala á fjölbreyttri ráðgjöf á landsvísu í samstarfi við annað starfsfólk RML.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

 Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Þekking á sviði landbúnaðar.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Geta til að vinna undir álagi.
  • Góðir samskiptahæfileikar.

Gert er ráð fyrir að starfsstöð viðkomandi verði á Selfossi.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið á 13 starfsstöðvum. Við bendum áhugasömum á að skoða heimasíðuna okkar en hér á síðunni er ásamt því að sækja um starfið hægt að kynna sér starfsemina enn frekar.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní. Nánari upplýsingar veita Vignir Sigurðsson framkvæmdastjóri vignir@rml.is og Berglind Ósk Óðinsdóttir boo@rml.is starfsmannastjóri.

Sækja um starf hjá RML

vs/okg