Verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður býður bændum og öðrum áhugasömum um landbúnað og lífræna ræktun til vinnustofu í Vallanesi á Fljótsdalshéraði mánudaginn 21. september. Viðfangsefni vinnustofunnar verður lífrænn landbúnaður, með sérstakri áherslu á hagnýtar leiðir, reynslu bænda og samtal um tækifæri og áskoranir í lífrænni ræktun.
Vinnustofan hefst kl.11:00 og stendur til kl.15:00. Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar í hádeginu.
Vinnustofan er hluti af starfi Loftslagsvæns landbúnaðar þar sem lögð er áhersla á fræðslu, ráðgjöf og jafningjafræðslu milli bænda. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem þátttakendur geta miðlað reynslu, rætt raunhæfar aðgerðir og skoðað hvernig sjálfbærari búskaparhættir geta stuðlað að betri nýtingu aðfanga, aukinni jarðvegsheilsu, minni losun gróðurhúsalofttegunda og hagrænum ávinningi í búrekstri.
Lífræn ræktun hefur verið stunduð í Vallanesi til margra ára og búa bændur þar yfir gríðar mikilli reynslu í þeim málum. Þar hefur verið lífræn ræktun á korni og grænmeti, fullvinnsla og framleiðsla tilbúinna matvæla sem grundvallast á hráefni sem ræktað er á staðnum.
Meðal þess sem verður til umfjöllunar á vinnustofunni:
- Jarðvegsheilbrigði og leiðir til að viðhalda öflugu jarðvegslífi.
- Aðferðir til að halda illgresi í skefjum án notkunar varnar- og eiturefna.
- Lífræn áburðarefni og tækifæri til nýtingar þeirra í jarðrækt, uppgræðslu og skógrækt.
- Hvernig lífræn nálgun getur stutt við sjálfbærni, kolefnisbindingu og betri auðlindanýtingu.
- Reynslu bænda af því að prófa nýjar leiðir og laga aðgerðir að aðstæðum hvers bús.
Vinnustofan er opin öllum bændum, óháð búgrein, sem og öðrum sem hafa áhuga á landbúnaði, lífrænni ræktun, jarðvegsheilbrigði og loftslagsvænni nálgun í búrekstri. Hún er tilvalinn vettvangur til að fá nýjar hugmyndir, spyrja spurninga, ræða hagnýtar lausnir og hitta aðra sem vilja efla sjálfbærni í íslenskum landbúnaði.
Starfsfólk RML og Lands og skógar mun taka þátt í umræðum, koma með innlegg eftir þörfum og styðja við samtal þátttakenda. Áhersla verður lögð á að samtalið fari fram á hagnýtum nótum og að þátttakendur geti tengt umræðuna við eigin búrekstur, landnýtingu og framtíðaráform.
Skráning fer fram á heimasíðu RML. Bændur og aðrir áhugasamir eru hvattir til að skrá sig og nýta tækifærið til að taka þátt í samtali um lífræna ræktun, loftslagsvænar aðgerðir og framtíð íslensks landbúnaðar.
Sjá nánar:
Skráning á vinnustofuna
/okg