Starf fagstjóra búfjárræktar og þjónustusviðs

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir fagstjóra búfjárræktar- og þjónustusviðs.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Faglegur leiðtogi og fyrirliði teymis sem vinnur að búfjárrækt og þjónustu í landbúnaði.
  • Fagsviðið hefur meðal annars umsjón með ræktunarstarfi búfjárkynja, almennri þjónustu og ráðgjöf til landbúnaðar.
  • Fagstjóri ber lykilábyrgð á stýringu mannauðs og gætir þess að ráðgjafar á sviðinu nýtist sem best fyrir heildina.
  • Fagstjóri ber ábyrgð að innan teymisins séu verkefni og ráðgjöf markviss.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði búvisinda, raungreina, eða náttúruvísinda æskileg.
  • Stjórnunarreynslu krafist.
  • Þekking á verkefnastjórnun er kostur.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góðir samskiptahæfileikar.

Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á landbúnaði í sínum víðasta skilningi og hefur metnað og frumkvæði til að vinna að ráðgjafastarfsemi RML.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda og sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið á 12 starfsstöðvum. Við bendum áhugasömum á að skoða heimasíðu RML en þar er hægt að kynna sér starfsemina enn frekar. Einnig er sótt um starfið í gegnum heimasíðuna, sjá tengil hér neðar. 

Umsóknarfrestur er til og með 5. mars. Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson klk@rml.is og Helga Halldórsóttir heh@rml.is. 

Sjá nánar: 
Sækja um starf hjá RML

/okg