Bæklingur um fóðrun og aðbúnað ungkálfa

Kallað hefur verið eftir auknu fræðsluefni um nautakjötsframleiðslu og lagði RML, í samstarfi við Framleiðnisjóð, af stað í gerð fræðsluefnis um nautakjötsframleiðslu. Fóður- og nautgriparæktarhópur RML hóf vinnslu bæklings en þegar vinnan hófst varð mönnum ljóst að fræðsluefnið hefði orðið mjög yfirborðskennt ef allt ferli nautakjötsframleiðslu væri undir í einum stuttum bæklingi. Það varð því úr að mismunandi skeiðum framleiðslunnar var skipt upp og stefnan er að gera röð bæklinga með mismunandi tímabil framleiðslunnar í huga. Nú er fyrsta afurðin í þessari röð komin út en fjallar sá bæklingur um ungkálfa á mjólkurskeiði. Þessi bæklingur á jafnt við nautakjöts- og mjólkurframleiðslu. Lifandi og heilbrigðir kálfar eru lykilatriði í framleiðslu kjöts og mjólkur eða eins og sagt er: „Lengi býr að fyrstu gerð!“. Hér er um að ræða einstaklega viðkvæmt tímabil og mistök á þessu tímabili geta litað allt líf kálfsins í lélegra heilsufari og minni vexti. Farið er í gegnum fyrstu tíma kálfsins, mikilvægi broddmjólkur, mjólkur-, kjarnfóður- og gróffóðurgjöf og aðbúnað en ef þessi atriði eru í lagi skilar það bóndanum betri gripum og auknum hagnaði. Bæklingurinn er aðgengilegur hér á heimasíðunni. 

Sjá nánar:
Fyrstu skrefin - Um fóðrun og aðbúnað ungkálfa á mjólkurskeiði
Fóðurráðgjöf
Nautakjötsframleiðsla

/okg