Mikilvægt að fylgjast með ástandi jarðvegs

Síðustu ár hefur dregið verulega úr því að bændur taki jarðvegssýni til að kanna næringarástand jarðvegsins og aðstæður til vaxtar og fyrir vikið byggja menn áburðaráætlanir sínar oft á veikum grunni. Mikilvægt er að snúa þessari þróun við og efla á ný þennan mikilvæga þátt í bústjórninni. Mælt er með því að bændur láti taka jarðvegssýni úr túnum á u.þ.b. 5 ára fresti. Þannig má fylgjast með þróun í forða á helstu næringarefnum. Í þeim tilfellum þar sem grunur leikur á að næringarástandi jarðvegs sé ábótavant skal sérstaklega huga að þessum þætti og forgangsraða sýnatökunni með tilliti til þess.

Ráðunautar RML eru þessa dagana að skipuleggja sýnatökuna sem framkvæmd er á haustin. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að taka sýni dýpra en áður til að auka á áreiðanleika niðurstaðnanna. Boðið er upp á að bændur sæki rafrænt um sýnatöku hér í gegnum heimasíðuna á þar til gerðu eyðublaði, en að sjálfsögðu er einnig tekið við slíkum þjónustubeiðnum sem og öðrum í síma (516-5000).

Upplýsingar um gjaldtöku RML má sjá á heimasíðunni en efnagreiningarkostnaður hjá LbhÍ er 4.013 kr/án vsk fyrir hvert sýni.
Þess má geta að hjá RML eru í boði ýmsar „pakkalausnir“ og þar á meðal jarðræktarpakki sem ber heitið „Sprotinn“. Markmiðið með þeirri lausn er að veita bændum markvissa ráðgjöf í nýtingu áburðar ásamt því að veita ákveðna grunnþjónustu í jarðræktarskýrsluhaldi. Einn liðurinn þar er jarðvegssýnataka og túlkun á niðurstöðunum.

Sjá nánar

Panta hey-/jarðvegssýnatöku

Upplýsingar um ráðgjafarpakkann SPROTANN

bpb/okg