Framundan eru námskeið í Loftslagsvænum landbúnaði um allt land. Staðsetningar námskeiðanna hafa verið valdar út frá skráningum í gegnum sem bárust hér heimasíðu RML. Ennþá er hægt að skrá sig á námskeiðin. Þau verða haldin á eftirtöldum stöðum milli klukkan 10:00 og 16:30 ef næg þátttaka næst.
- 24. febrúar – Hvanneyri (Ásgarður)
- 25. febrúar – Höfn Hornafirði (Nýheimar)
- 26. febrúar – Selfoss (Fjölheimar)
- 26. febrúar – Egilsstaðir (Hótel Valaskjálf)
- 27. febrúar – Tjarnarlundur í Saurbæ
- 4. mars – Eyjafjörður (Hótel Natur, Þórisstöðum)
- 4. mars – Hvolsvöllur (Hvoll)
- 5. mars – Sauðárkrókur (Farskólinn)
- 5. mars – Ísafjörður (Skógræktin (fjarnámskeið))
- 6. mars – Hótel Laugarbakki í V-Hún
- 10. mars – Kópasker (Fjallalamb)
Á námskeiðunum gefst þátttakendum kostur á að efla þekkingu sína á loftslagsmálum og hvaða aðgerðir eru vænlegar til árangurs svo sem með breyttri landnýtingu, ræktun, áburðarnotkun og fóðrun. Fyrirlesarar á námskeiðunum koma frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, Landgræðslunni og Skógræktinni.
Kostnaður á einstakling eru 12 þúsund krónur og innifalið er hádegisverður og kaffi.
Í framhaldi af námskeiðunum verður auglýst eftir formlegri þátttöku í verkefninu.
Aðeins þeir sem hafa lokið námskeiði í Loftslagsvænum landbúnaði og eru í gæðastýrðri sauðfjárrækt geta fengið aðild að verkefninu með tilheyrandi stuðningi sem fjallað verður um á námskeiðunum.
Sjá nánar:
Skráning á námskeið í Loftslagsvænum landbúnaði
bpb/okg