Nýtt skýrsluhaldsár hefst 1. apríl

Minnum á að nýtt skýrsluhaldsár í hrossarækt hefst 1. apríl ár hvert. Eftir þann tíma er ekki hægt að skrá neitt sem tilheyrir árinu 2020 inni í heimaréttinni. Ef til vill hafa einhverjir gleymt að gera grein fyrir fyljanaskráningu eða skráningu á folöldum. Ræktendur er hvattir til að skoða heimaréttina og athuga hvort allt er frágengið fyrir síðasta ár.

Stóðhesteigendur eru minntir á að staðfesta fangskráningar sem hafa komið frá hryssueigendum í gegnum heimaréttina. Sé það ekki gert skilar skráningin frá hryssueigandanum sér ekki inn í folaldaskráningu árið 2021.

Nánari upplýsingar um heimaréttina og notkun hennar er að finna á heimasíður RML.

Sjá nánar
Leiðbeiningar um notkun heimaréttar WorldFengs 

okg/