Skýrsluhald - hrossarækt

Rétt er að minna á að nýtt skýrsluhaldsár í hrossarækt hefst 1. apríl ár hvert í WorldFeng. Eftir þann tíma er ekki hægt að skrá það sem tilheyrir síðastliðnu ári inni í heimaréttinni. Ræktendur er hvattir til að skoða heimaréttina sína og athuga hvort allt sé frágengið fyrir árið 2021. Er búið að skrá folöldin, fang, geldingar og afdrif?

Eigendur stóðhesta eru minntir á að skrá fangskýrslur sinna stóðhesta í gegnum heimaréttina. Einnig að staðfesta fangskráningar sem hafa komið frá hryssueigendum þar í gegn. Sé það ekki gert skilar skráningin frá hryssueigandanum sér ekki inn í folaldaskráningu þessa árs. Hryssur þurfa að hafa staðfest fang í WF til að eigendur þeirra hafi möguleika á að skrá folöld í gegnum sína heimarétt sér að kostnaðarlausu.

Frá og með þessu ári verður tekið gjald fyrir allar grunnskráningar, óháð aldri. Það verður því ekki lengur frítt að skrá folöld eins og verið hefur fram til þessa.

Til upprifjunar er rétt að benda á að hryssueigendur geta grunnskráð sín folöld sjálfir að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

  • Hafa fullan aðgang að WF, hjarðbókaraðgangur nægir ekki.
  • Viðkomandi verður að vera þátttakandi í skýrsluhaldi WF (hafa skráðan uppruna og fastanúmer).
  • Fangskráning þarf að vera staðfest.

Nánari upplýsingar um heimaréttina og notkun hennar er að finna á heimasíðu RML.

Sjá nánar:
Leiðbeiningar um notkun heimaréttar WorldFengs 

/okg