Heimsóknir í akra: Tíma- og staðsetningar uppfærðar

Dagana 20.-23. júní nk. verður Benny Jensen kartöflu- og kornræktarráðunautur frá BJ-Agro í Danmörku hér á landi og heimsækir bú og skoðar kartöflugarða en einnig kornakra á ákveðnum stöðum. Verður ástand akranna metið og m.a. horft eftir illgresi, sjúdómum og skortseinkennum í korni.
Kornbændum og öðru áhugafólki um kornrækt er boðið að skoða þessa akra með Benny. Í för með honum verða ráðunautar frá RML. Tíma- og staðsetningar hafa verið uppfærðar hér á síðunni.

Sjá nánar:

Heimsóknir í kornakra

el/gj