Lambadómar - Opnað fyrir pantanir

Móttaka á pöntunum fyrir lambadóma er nú hafin. Fyrirkomulagið er með svipuðu sniði og síðustu ár, en best er að pantanir berist í gegnum heimasíðu RML (sjá flipa á heimasíðu) eða haft verði samband í síma 516-5000.
Best er að pantanir berist sem fyrst en eftir 15. ágúst verður farið að vinna að niðurröðun bæja. Miðað er við að pantanir sem berast fyrir 15. ágúst séu forgangspantanir og eftir þann tíma getur orðið snúnara að verða við óskum bænda um ákveðna daga.
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag skoðunar og gjaldskrá fyrir komandi haust verður kynnt betur síðar.

 

ee/hh