Skipulagning lambadóma haustsins í fullum gangi

Á næstu dögum verða birt dagatöl sauðfjárdóma hér á vefnum jafnóðum og þau verða tilbúin, þau verða svo uppfærð reglulega eftir því sem við á. Eins og áður hefur komið fram njóta pantanir sem bárust fyrir 21. ágúst forgangs við niðurröðun.
Best er að bændur panti sjálfir hér í gegnum vefinn en einnig er hægt að hringja í 516-5000 og láta taka pöntun niður.


Eftirtaldir aðilar sjá um skipulagningu lambadóma:
Gullbringusýsla, Kjósarsýsla, Borgarfjörður, Snæfellsnes, Dalasýsla, Vestur-Barðastrandarsýsla og Ísafjarðarsýslur: Árni B. Bragason og Oddný Kristín Guðmundsdóttir
Vestur-Húnavatnssýsla og Strandir: Sigríður Ólafsdóttir
Austur-Húnavatnssýsla: Auður Ingimundardóttir
Skagafjörður, Eyjafjörður: Ditte Clausen
Suður-Þingeyjasýsla: Guðrún Hildur Gunnarsdóttir
Norður-Þingeyjarsýsla: Steinunn Anna Halldórsdóttir
Múlasýslur: Guðfinna Harpa Árnadóttir
Austur og Vestur-Skaftafellssýslur, Rangárvallasýsla og Árnessýsla: Fanney Ólöf Lárusdóttir

 Sjá nánar

Panta lambadóma

Dagatal sauðfjárdóma 2023

/hh