„Sumri hallar, hausta fer“

Gróður er enn í fullum sumarskrúða en það styttist samt í göngur, réttir og önnur hauststörf. Sláturhúsin eru eflaust farin að kalla eftir sláturfjárloforðum og tímasetning á fjárragi farin að skýrast hjá mörgum bændum. Við viljum minna bændur á að panta lambadóma hjá okkur fyrr en seinna svo skipuleggja megi þessa vinnutörn með sem hagkvæmustum hætti fyrir alla. Eins og áður hefur komið fram njóta pantanir sem berast fyrir 16. ágúst forgangs hvað varðar óskatímasetningu hjá hverjum og einum.

Sjá fréttir á heimasíðunni frá 9. júlí um lambadóma 2021 og DNA sýnatöku. Pöntunarformið er á forsíðunni, hnappurinn Panta lambadóma.

Sjá nánar: 
DNA sýnataka samhliða sauðfjárdómum
Lambadómar haustið 2021
Panta lambamælingu 2021

/okg